18.05.1979
Neðri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4996 í B-deild Alþingistíðinda. (4324)

291. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég get vel fallist á það að hv. þm. setji út á einstök atriði í fundarstjórninni og e. t. v. er þetta aðfinnsluvert, þó að mér finnist það reyndar ekki, vegna þess að ég tók fram að þarna væri um að ræða frestun þar til síðar á fundinum, og sú ákvörðun mín stendur að sjálfsögðu enn.