13.11.1978
Sameinað þing: 18. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. nóv. 1978. Jónas Árnason, 4. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég af heilsufarsástæðum mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Vesturlandskjördæmi, Skúli Alexanderssonframkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.