21.05.1979
Neðri deild: 94. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5125 í B-deild Alþingistíðinda. (4496)
291. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég lagði fram þá spurningu til hæstv. landbrh. við umr. um þetta frv., þegar nokkuð var liðið á nótt fyrir tveimur dögum hvernig lán þetta, 3.5 milljarðar, ætti að endurgreiða, en hæstv. ráðh. hefur ekki séð ástæðu til að svara þeirri spurningu minni og því segi ég nei.