22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5237 í B-deild Alþingistíðinda. (4612)

299. mál, fjáraukalög 1977

Frsm. (Þórarinn Sigurjónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur haft frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1977 til umsagnar. Eins og fram kemur í aths. við þetta frv. hafa yfirskoðunarmenn ríkisreikninga lagt til að þær aukafjárveitingar, sem um ræðir samkv. frv., verði samþykktar. N. hefur borið niðurstöður frv. saman við ríkisreikninginn og ekkert fundið athugavert og er n. sammála um afgreiðslu frv. og leggur til að frv. verði samþykkt.