19.03.1980
Neðri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (1248)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Forseti (Garðar Sigurðsson):

Hv. 6. þm. Reykv. vék tvisvar að forsetum í máli sínu.

Í fyrra skiptið nefndi hann að óskir hefðu komið fram um að fresta umr. málsins við 2. umr. Það eina, sem ég get sagt um það, er að umr. var frestað. Í annan stað sagði hann, þegar hann vék máli sínu til forseta, að forsetar d. hefðu beitt offorsi við afgreiðslu þessara mála. Það kannast ég ekki við.