23.04.1980
Neðri deild: 63. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (1927)
56. mál, mat á sláturafurðum
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég vil láta þess getið, að sú breyting, sem hér er flutt í brtt. á þskj. 341, er gerð í samráði við mig og ég styð frv. í því formi sem það liggur hér fyrir. Að svo mæltu vil ég þakka hv. landbn. fyrir afgreiðslu á þessu máli. Ég vænti þess, að það nái nú skjótri afgreiðslu.