20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)

1. mál, fjárlög 1981

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Stjórnarskrá lýðveldisins tryggir öllum þegnum landsins tjáningarfrelsi. Tjáningarfrelsi er hluti af því lýðræði sem við búum við og erum að reyna að skapa. Blaðaútgáfa á Íslandi ber sig ekki nema með stuðningi erlendra og innlendra auglýsenda, m.a. stórfyrirtækja og eignasala. Ég segi nei.