20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1874 í B-deild Alþingistíðinda. (2113)

Þingfrestun

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi forsetabréf um frestun á fundum Alþingis:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 103. löggjafarþings, frá 20. des. 1980 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 26. jan. 1981.

Gert í Reykjavík, 19. desember 1980.

Vigdís Finnbogadóttir.

Gunnar Thoroddsen.“

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 103. löggjafarþings, er frestað frá 20. des. og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 26. jan. 1981.

Hv. alþingismönnum, starfsfólki Alþingis og landslýð öllum flyt ég óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.