26.03.1981
Sameinað þing: 66. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3108 í B-deild Alþingistíðinda. (3247)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil að gefnu tilefni rifja upp, að í umr. um fjárlög yfirstandandi árs á Alþingi, í Sþ. 19. des. s. l., gaf hæstv. viðskrh., Tómas Árnason, eftirfarandi yfirlýsingu, en hann mun þá hafa gegnt störfum utanrrh. eða a. m. k. var sú yfirlýsing gefin í fjarveru hæstv. utanrrh. Hæstv. viðskrh. komst svo að orði:

„Á þskj. 329, brtt. við frv. til fjárlaga undir VI. lið, er brtt. frá hv. þm. Friðrik Sophussyni, Karvel Pálmasyni, Guðmundi Karlssyni og Lárusi Jónssyni um að til gjalda á fjárlagafrv. verði 2 milljarðar vegna flugstöðvarbyggingar á Keflavíkurflugvelli og tekin lán að sömu upphæð. Í tilefni af þessari brtt. vil ég segja þetta:

Eins og raunar er kunnugt hefur utanrrh. borið fram tillögu í ríkisstj. um að sérstök lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli verði tekin inn á fjárfestingar- og lánsfjáráætlun. Tillaga utanrrh. hefur ekki verið afgreidd í ríkisstj., en hann hefur áskilið sér rétt til að bera fram brtt. við lánsfjáráætlun. Nú er verið að endurskoða hönnun byggingarinnar með það fyrir augum að lækka byggingarkostnað, og væntanlega verður því verki lokið um miðjan febrúarmánuð n. k. Með tilliti til þessa og svo hins, að lánsfjáráætlun verður ekki afgreidd fyrr en að loknu jólaleyfi þm., sýnist eðlilegast að fresta ákvörðunum í þessu máli.“

Í krafti þessarar yfirlýsingar drógu flm. tillögu sína til baka, með þeim fyrirvara auðvitað að bera hana síðar fram, m. a. við afgreiðslu lánsfjár- og fjárfestingaráætlunar. En því til viðbótar vildi ég ítreka og endurtaka, að það er eðlilegt að þetta mál komi til meðferðar Alþingis og Alþingi kveði upp úr um að í þessa framkvæmd skuli ráðist.