08.04.1981
Efri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3547 í B-deild Alþingistíðinda. (3579)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Með tilliti til þess, að þær 500 millj. gkr., sem hér er ráð gert að taka að láni til byggingar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli, mundu nægja til að bæta nokkuð úr öryggisástandi á flugvöllum kringum landið og svo til þess, að sú feiknaupphæð, 20 milljarðar, sem ætlast er til að Íslendingar leggi af mörkum í þessa flugstöð í heild, mundi nægja til að gera alla flugvelli landsins prýðilega úr garði, bæði sem flugvelli og hvað öryggisútbúnað snertir, og loks með tilliti til grg. hv. þm. Geirs Gunnarssonar áðan segi ég nei.