15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4413 í B-deild Alþingistíðinda. (4460)

Skýrsla forsætisráðherra um Framkvæmdastofnun ríkisins

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. hefur gefið skýrslu um Framkvæmdastofnunina með hefðbundnum hætti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að í umræðu um Framkvæmdastofnunina undanfarnar vikur hafa togarakaup fyrir Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga verið mjög á dagskrá. Fyrir þremur mánuðum óskuðu tíu þm. eftir skýrslu um það mál. Rétt fyrir páskahlé spurðist ég fyrir um það utan dagskrár hvort ekki væri að vænta skýrslunnar, og átti nánast von á því, að þegar hæstv. forsrh. gerði grein fyrir skýrslunni um Framkvæmdastofnun lægi hin skýrslan hér fyrir. Mig langar því til þess að spyrja hvort nú sé ekki vona á skýrslunni áður en að þinglokum kemur.