20.05.1981
Neðri deild: 101. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4711 í B-deild Alþingistíðinda. (4912)

231. mál, eftirlaun til aldraðra

Frsm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. sem liggur hér frammi á þskj. 931. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um þetta mál og samþykkt að mæla með afgreiðslu þess eins og það var afgreitt frá Ed. Hv. Ed. gerði á þessu frv. nokkrar breytingar, sem liggja hér frammi á þskj. 755.

Þar sem hér er um að ræða eitt af loforðum í yfirlýsingu ríkisstj., sem hún gaf við kjarasamninga 27. okt. s. l., taldi heilbr.- og trn. sér ekki fært annað en að veita þessu frv. brautargengi með þeim breytingum sem áorðnar eru, eða eins og frv. liggur fyrir á þskj. 841, og leggur því til að það verði samþykkt þannig.