12.11.1980
Sameinað þing: 18. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (500)
Rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Ólafs Björnssonar útgerðarmanns, sem er 1. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi. Kjörbréfanefnd gerir engar aths. við kjörbréfið og leggur til að kosning verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.