17.11.1980
Neðri deild: 17. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í B-deild Alþingistíðinda. (562)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Alexander Stefánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi Valdimar Indriðason framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Friðjón Þórðarson,

2. þm. Vesturl.“

Valdimar Indriðason hefur áður átt sæti á Alþingi og þarf því ekki að rannsaka kjörbréf hans. Ég býð hann velkominn til starfa.