18.11.1980
Neðri deild: 18. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Eins og öll þessi mál eru í pottinn búin, þá er ríkisstj. með þessari till. fengið mikið og gersamlega óeðlilegt vald. Ég treysti ekki núv. hæstv. ríkisstj. fyrir þessu valdi og ég treysti ekki hæstv. samgrh. svo sem hann hefur klúðrað þessu máli nú á síðustu mánuðum. Ég segi nei.