20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (676)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Ágústs Einarssonar, sem er 1. varaþm. Alþfl. í Suðurlandskjördæmi. Kjörbréfanefnd gerir engar aths. við kjörbréfið, leggur til að kosning verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.