19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1892 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)

1. mál, fjárlög 1982

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Stjórnarskráin segir svo: „Ekki má heldur taka lán er skuldbindi ríkið né selja eða með öðrum móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkv. lagaheimild.“ Ég geri ráð fyrir að farið verði að þessari grein þegar tekin verði ákvörðun um það, hvort þessi heimild verði notuð, og segi já.