03.03.1982
Neðri deild: 48. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2840 í B-deild Alþingistíðinda. (2388)

Umræður utan dagskrár

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér mikið í þessar umr., en vil leggja áherslu á að þessar verksmiðjur, sem er verið að byggja upp, önnur í Hólminum í Skagafirði og hin í Saltvík í Suður-Þingeyjarsýslu, búi við sömu framlög og fyrirgreiðslu að öllu leyti af hálfu ríkisins, enda skil ég orð hæstv. landbrh. á þá leið, að hann muni beita sér fyrir því.