25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3255 í B-deild Alþingistíðinda. (2870)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Vegna þessara orða forseta vil ég taka það fram og skýrt undirstrika, að það er ekki óeðlilegra að taka till., sem dregin hefur verið til baka, upp — eins og þingsköp heimila undir þessum kringumstæðum — en að hæstv. forseti dregur til baka og eiginlega nemur úr gildi löglega atkvgr. sem hér hefur farið fram í deildinni.