05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 497 í B-deild Alþingistíðinda. (342)

325. mál, símaþjónusta opinberra stjórnsýslustofnana

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það var út af þessum síðustu orðaskiptum. Við vitum að forsrh. ásamt ríkisstj. er verkstjóri í raun hér á Alþingi. Ég vænti þess, að hæstv. símamálaráðh. láti reyna á það svo fljótt sem verða má, og þegar á þessu ári, að Alþingi taki þetta mál til afgreiðslu þannig að ljóst megi verða hvaða háttur verði hafður á til frambúðar í þessum málum.