20.04.1982
Sameinað þing: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3523)

256. mál, samningar við Færeyjar og Noreg um veiðar á kolmunna

Frsm. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Utanrmn. hefur fjallað um till. til þál. um staðfestingu á samningum við Færeyjar og Noreg um gagnkvæmar heimildir til veiða á kolmunna. Nefndin hefur orðið sammála um að leggja til að þessi þáltill. verði samþykkt. Þar sem framsaga var höfð um þetta mál og það skýrt þá sé ég ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um málið og mælist til þess, að Alþingi fallist á þáltill.