23.04.1982
Neðri deild: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4126 í B-deild Alþingistíðinda. (3708)

231. mál, umferðarlög

Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Allshn. Nd. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á umferðarlögum nr. 40 frá 23. apríl 1968, sbr. lög nr. 31 frá 22. maí 1980.

Nefndin hefur fjallað um þetta mál á tveimur fundum sínum og nefndarmenn eru sammála um að mæla með samþykkt frv. eins og það kom frá Ed.