06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4807 í B-deild Alþingistíðinda. (4609)

149. mál, virkjunarframkvæmdir og orkunýting

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Með tilvísun til bókunar Magnúsar H. Magnússonar í atvmn. og þess skilnings, sem þar kemur fram, og þess, að sú virkjunarleið verði valin sem hagkvæmust er og ódýrust fyrir þjóðina, og í trausti þess, að skattpeningum fólksins í landinu verði ekki fleygt út um gluggann, segi ég já.