15.10.1981
Sameinað þing: 4. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

Umræður utan dagskrár

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég sé mig neyddan til að koma hér aftur í ræðustól til þess að spyrja aðeins einnar spurningar og hún er þessi: Ber að skoða þetta svar hæstv. fjmrh. sem svo, að hann sé sammála því sem kom fram í ræðu hv. 11. þm. Reykv., sem er formaður í þingflokki Alþb., eða er hann ósammála því? Um það var spurt. Það var eina spurningin, sem hæstv. fjmrh. fékk, og ég vil fá að heyra hér og nú hver hans afstaða er í þessu máli.