17.12.1982
Neðri deild: 21. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

55. mál, orlof

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Aðeins út af því sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sagði áðan. (Forseti: Þetta er ekki umr.) Ég vil minna á að þm. Alþfl. hafa nokkur undanfarin þing flutt frv. hér í þinginu um þetta atriði, þannig að það hefur legið fyrir þingheimi nokkur ár hver afstaða Alþfl. hefur verið til þessa. Ég hef ekki gert samkomulag við neinn hér á hv. Alþingi um að stíga styttra í réttindabaráttunni launafólki Alþýðusambandsins til handa en hér er gert ráð fyrir. Ég segi því já.