18.12.1982
Efri deild: 27. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (1089)

Þingfrestun

Forseti (Helgi Seljan):

Þar sem þetta mun verða síðasti fundur þd. fyrir jólahátíðina vil ég nota þetta tækifæri til að þakka hv. þdm. ágæta samvinnu á þessu ári, samvinnu sem hefur verið öll til fyrirmyndar af þeirra hálfu og gert það að verkum að störf hafa gengið hér með slíkum ágætum sem raun ber vitni. Ég vil nota þetta tækifæri til að flytja hv. þdm. mínar innilegustu jóla- og nýársóskir um leið. Sömuleiðis flyt ég skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þingsins bestu jóla- og nýársóskir og þakka þeim gott samstarf og störf þess í hvívetna fram að þessum tíma.

Þeim hv. þdm. sem um langan veg eiga heim að sækja óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og vænti þess, að við megum öll heil hittast á næsta ári.