18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)

1. mál, fjárlög 1983

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skil þennan lið þannig, þar sem hér segir: „að taka lán allt að 10 millj. kr. vegna flugstöðvar í Keflavík“, að með samþykkt þessa liðar sé verið að samþykkja að verja 10 millj. kr. á vegum íslenska ríkisins til byrjunarframkvæmda við nýja flugstöð í Keflavík. Því segi ég já. (Gripið fram í: Þetta er rangt hv. þm. Það stendur ekkert um það í till.)