07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (732)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég er ekki einn þeirra þm. sem leggja í vana sinn að hlaupa í ræðustól í tíma og ótíma hér á hv. Alþingi. En ég svara að sjálfsögðu fsp. ef þeim er beint til mín. Hins vegar reyni ég einnig að halda mig við þingsköp. Hér hefur verið beint fsp. til mín sem eru ekki á dagskrá hér samkv. þingsköpum. Væntanlega gefst tækifæri til að svara þeim siðar, þegar fjallað verður um till. til þál. um stefnumörkun í landbúnaði, sem þm. Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu hafa nú þegar lagt fram. Það er 75. mál á þessu hv. þingi. Vonandi gefst þá tækifæri til að ræða málin.