16.12.1982
Sameinað þing: 31. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (919)

271. mál, rækjuveiðar við Húnaflóa

Fyrirspyrjandi (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. hans svör. Í rauninni bjóst ég ekki við öðrum svörum. En ég vil bara í framhaldi af því sem hæstv. ráðh. sagði hér hvetja til þess að fyrir næstu rækjuvertíð verði hugað vandlega að því, hvort ekki reynist unnt að breyta þessari skiptingu, m.a. með tilliti til þeirra breytinga sem orðið hafa á atvinnulífi annarra þeirra staða sem njóta hluta af þeirri skiptingu, og þeim reglum sem nú eru í gildi.