30.11.1983
Neðri deild: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)

90. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 51 9. júní 1980, um Húsnæðisstofnun ríkisins. Hér er um að ræða brbl. um breytingu á þessum lögum, fyrst og fremst að því er varðar forkaupsrétt sveitarfélaga. Þessi brbl. voru gefin út 20. apríl 1983 að frumkvæði fyrrv. félmrh. og voru til meðferðar á síðasta Alþingi en urðu ekki útrædd.

Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta frv. og legg til að að lokinni þessari umr. verði því vísað til 2. umr. og hv. félmn.