08.12.1983
Sameinað þing: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (1365)

372. mál, bráðabirgðasamningur milli Íslands og SwissAluminium

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Til að leiðrétta misskilning þá vil ég leiðrétta það sem kom fram í máli hæstv. iðnrh. að hv. 7. þm. Reykv. væri búinn að tala sig dauðan í þessum umr. (Iðnrh.: Nei, 5. þm. Austurl.) 5. þm. Austurl. (Iðnrh.: Steindauðan.) Já.

5. þm. Austurl. hefur talað tvisvar í þessu máli, það er rétt, en hv. 7. þm. Reykv. hefur ekki talað nema einu sinni og hann hefur því möguleikana til þess að tala áfram í þessu máli, auk þess sem hann hefur margs konar möguleika til að ræða þetta mál undir öðrum dagskrárliðum í þinginu, eins og hefur komið hér fram, bæði hjá hv. 5. þm. Austurl. og hæstv. iðnrh. nú síðast.