15.12.1983
Sameinað þing: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (1552)

131. mál, þingsköp Alþingis

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. sem ég flyt ásamt formönnum allra þingflokka.

Það hefur orðið samkomulag milli forseta Alþingis og formanna þingflokkanna að leggja til að níu manna nefnd alþm. verði falið að endurskoða gildandi lög um þingsköp. Þá er gert ráð fyrir að forsetar þingsins skipi þessa nefnd ásamt einum manni frá hverjum þingflokki. Sú till. sem hér er til umr. er flutt í samræmi við þetta samkomulag.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta mál. Með tilliti til þess hvernig málið er til komið og hvers eðlis það er legg ég ekki til að því verði vísað til nefndar.