25.10.1983
Sameinað þing: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (170)
Rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til athugunar kjörbréf Guðmundar H. Garðarssonar, 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík. Kjörbréfanefnd hefur ekkert við kjörbréf hans né kosningu að athuga og leggur til að kjörbréfið verði samþykkt.