17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2059 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)

Um þingsköp

Kristín S. Kvaran:

Herra forseti. Ég vil aðeins spyrja einnar spurningar, áður en atkvgr. fer hér fram og þetta mál verður tekið fyrir áfram, hvenær þessi fundur var boðaður og hvernig. Einfalt svar við því, ef hægt er.