24.01.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2291 í B-deild Alþingistíðinda. (2027)

76. mál, orkusparnaður

Flm. (Guðmundur Einarsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. jákvæðar undirtektir hans undir þetta mál og vona að við megum sjá boðað frv. um orkusparnað o. fl. sem fyrst.