25.01.1984
Efri deild: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2321 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

167. mál, veiting ríkisborgararéttar

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Þar sem þetta er fyrsti fundur Ed. á nýbyrjuðu ári vil ég leyfa mér að óska hv. þdm. gleðilegs árs og þakka samstarfið á liðnu ári. Sömu óskir færi ég starfsfólki Alþingis. Ég vænti þess, að hið nýbyrjaða ár færi okkur öllum heilladrjúg störf í þágu lands og þjóðar.