07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2612 í B-deild Alþingistíðinda. (2282)

408. mál, sumarbústaðir að Hellnum

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Hv. 12. þm. Reykv. hefur gert grein fyrir fsp. sem hann ber fram til mín um undirstöður sumarbústaða að Hellnum og hvað líði máli því.

Dómur í þessu máli, sem höfðað var með ákæru ríkissaksóknara 29. des. 1981 gegn fjórum mönnum fyrir eignaspjöll, var kveðinn upp í sakadómi Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 18. jan. s.l.