02.04.1984
Neðri deild: 69. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4332 í B-deild Alþingistíðinda. (3705)

122. mál, framsal sakamanna

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. Nd. um frv. til l. um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum. Þetta er 122. mál, nál. nr. 511.

Allshn. hefur á fundum sínum athugað þetta frv. og leggur einróma til að það verði samþykkt. Undir þetta álit skrifa auk mín Guðrún Helgadóttir, Ólafur Þ. Þórðarson, Pálmi Jónsson, Guðmundur Einarsson og Stefán Guðmundsson, en Friðjón Þórðarson var fjarstaddur við afgreiðslu málsins.