30.04.1984
Efri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4977 í B-deild Alþingistíðinda. (4390)

331. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Virðulegi forseti. Í framsögu fyrir þessu frv. get ég látið nægja að vísa til framsögu fyrir frv. um Búnaðarbanka Íslands. Rökin eru þau hin sömu að færa bankana undir eina yfirstjórn. Skal ég ekki hafa um það fleiri orð, en legg til að frv. þessu verði eins og því fyrra vísað til 2. umr. og hv. fjh.og viðskn. að lokinni þessari umr.