16.05.1984
Neðri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6036 í B-deild Alþingistíðinda. (5412)

Um þingsköp

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég vil vekja á því athygli að forseta er ætlað að stjórna hér fundum og gera athugasemdir við mál manna, þegar það gengur úr hófi fram hvað svívirðingar snertir og ég vænti þess að hann sofni ekki í því embætti sínu.