15.11.1983
Sameinað þing: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

9. mál, afsögn þingmennsku

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Með leyfi hæstv. forseta leyfi ég mér að lesa upp fundargerð Sþ. frá 10. okt., framsögu hæstv. félmrh., þá framsögumanns 2. kjördeildar:

„Herra forseti. 2. kjördeild fékk til meðferðar kjörbréf 1. kjördeildar og niðurstaða 2. kjördeildar var sú, að við mælum með því að kjörbréfin verði samþykkt. Þau eru: Kjörbréf Árna Johnsens, Eggerts Haukdals, Friðriks Sophussonar Matthíasar Bjarnasonar, Halldórs Ásgrímssonar, Ólafs Jóhannessonar, Guðmundar Bjarnasonar, Hjörleifs Guttormssonar, Karvels Pálmasonar, Jóns Baldvins Hannibalssonar, Guðrúnar Agnarsdóttur, Skúla Alexanderssonar, Pálma Jónssonar, Kristínar Halldórsdóttur, Ragnhildar Helgadóttur, Stefáns Valgeirssonar, Svavars Gestssonar, Valdimars Indriðasonar og Þórarins Sigurjónssonar.“

Síðan segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þá er hér kjörbréf Geirs Hallgrímssonar, sem kemur inn fyrir Ellert B. Schram. Það bárust kjördeildinni tvö bréf frá Ellert B. Schram. Fyrra bréfið, sem hæstv. forseti las hér, var dagsett 23.9. og þar stendur, með leyfi forseta.“

Ég hleyp yfir bréfið því að efni þess þekkja menn. — Að loknum lestri þessara bréfa segir frsm. enn fremur, með leyfi hæstv. forseta:

„Kjördeildin varð sammála um að taka þetta til greina og mæla með því að kjörbréf Geirs Hallgrímssonar sem 1. varaþm. í Reykjavíkurkjördæmi verði samþykkt.“ Ég endurtek: Kjördeildin varð sammála um að leggja til að öll þessi kjörbréf, með þessari athugasemd, væru tekin gild. Hér er ekki einu orði minnst á kjörbréf Ellerts B. Schram.