20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2399 í B-deild Alþingistíðinda. (1880)

Þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég vil þakka hv. 3. þm. Norðurl. v. hlý orð í minn garð og góðar óskir til mín og fjölskyldu minnar. Ég þakka öllum hv. alþm. fyrir að taka undir þessi orð hv. 3. þm. Norðurl. v.

Ég ítreka óskir mínar um gleðileg jól og gott og farsælt komandi ár öllum alþm. og starfsliði Alþingis til handa.