28.01.1985
Sameinað þing: 39. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2402 í B-deild Alþingistíðinda. (1886)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréf Vigfúsar Jónssonar, sem er kjörinn 2. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. e., en er nú 1. varaþm. flokksins í því kjördæmi. Þess er óskað að hann taki nú sæti á Alþingi í fjarveru Halldórs Blöndals.

Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréfið og finnur ekkert athugavert og leggur til að það verði samþykkt.