29.01.1985
Sameinað þing: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2404 í B-deild Alþingistíðinda. (1896)

197. mál, aðstöðugjald

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Á þskj. 221 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. félmrh. um aðstöðugjöld. Þessi fsp. er borin fram sama dag og í tengslum við fsp. til hæstv. fjmrh. um skatta verslunarinnar, banka og skipafélaga árið 1983 sem var síðasta mál á dagskrá en var frestað þar sem hæstv. fjmrh. hafði ekki svör við spurningunni. Ég vænti þess að hæstv. félmrh. geti svarað þeirri spurningu sem hér er borin fram, sem er:

1. Hver var aðstöðugjaldsstofn árið 1983

a. smásöluverslunar,

b. heildverslunar,

c. skipafélaga?

2. Hverju námu aðstöðugjöld þessara aðila, sem nefndir eru í 1. tölulið, árið 1983?