12.02.1985
Sameinað þing: 48. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2859 í B-deild Alþingistíðinda. (2336)

287. mál, könnun á launum og lífskjörum

Helgi Seljan:

Herra forseti. Það vakti athygli mína hve ágætum lagaprófessor, hv. 2. þm. Reykn., gekk illa að skýra muninn á till. tveimur. Og mér datt í hug:

Illa skreið hér skrýtin gnoð

skýring vakti aukinn grun.

Langsótt var hans lagastoð.

Loks í Japan fann hann mun.