25.03.1985
Efri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3785 í B-deild Alþingistíðinda. (3117)

368. mál, ríkisreikningurinn 1980

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1980 eins og það liggur frammi á þskj. 588. Ríkisreikningur fyrir árið 1980 er lagður fyrir Alþingi og eins og þar kemur fram hafa útgjöld numið 378 985 371 gömlum kr. á því ári en tekjur námu 392 882 501 gömlum kr. Að öðru leyti er ekki ástæða til að fjölyrða um efni ríkisreikningsins sem nánar verður tekinn til meðferðar í nefnd.

Ég vil leyfa mér að leggja til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.