26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3844 í B-deild Alþingistíðinda. (3194)

374. mál, vatnstaka Íslandslax hf. í Grindavík

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Vegna þessara umr. og þess sem hér hefur komið fram, fsp. um afstöðu ráðh. Sjálfstfl., vil ég láta það koma fram að mér var ekki kynnt málið og um það vissi ég ekki fyrr en samningurinn var gerður.