13.05.1985
Neðri deild: 68. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5154 í B-deild Alþingistíðinda. (4437)
5. mál, útvarpslög
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Bandalag jafnaðarmanna hefur gert ráð fyrir því í sínum tillögum til útvarpslaga að útvarpsréttarnefnd verði felld niður. Hér er ákvæði um hlutverk hennar sem við gerum ekki ráð fyrir. Því segi ég nei.