04.06.1985
Neðri deild: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5892 í B-deild Alþingistíðinda. (5247)

470. mál, Þroskaþjálfaskóli Íslands

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil upplýsa að það hefur farið fram talning á viðstöddum neðrideildarmönnum. Þeir eru tuttugu talsins. Ég sé ekki ástæðu til að sitja þennan fund lengur og mun fara af fundi og ég skora á aðra hv. þm. að gera það. Hér er einungis verið að nota stjórnarandstöðuþm. til þess að láta mál verða útrædd, hér er ekki hægt að greiða fyrir neinu máli og þessi fundur er óstarfhæfur.