07.06.1985
Neðri deild: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6064 í B-deild Alþingistíðinda. (5519)

364. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar

Frsm. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1136 um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 53 frá 28. maí 1980, um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar. Iðnn. hefur fjallað um málið og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Undir þetta rita 6. júní 1985 Hjörleifur Guttormsson frsm., Birgir Ísl. Gunnarsson varaformaður, Guðrún Agnarsdóttir fundaskrifari, Friðrik Sophusson og Gunnar G. Schram. Ég hef engu við þetta nál. að bæta. Sjónarmið mín í þessu máli komu fram við 1. umr. málsins hér í hv. deild og ég get aðeins sagt að þessi breyting hefði mátt ná fram að ganga þótt fyrr hefði verið.